Neyðartilfelli utan opnunartíma

Ef neyðartilfelli kemur upp utan opnunartíma er hægt að ná í dýralækni á bakvakt á höfuðborgarsvæðinu.

530 4888

Á opnunartíma hringir þú beint á stofuna í síma 552 3621.

Svona virkar vaktin

Dýralæknastofa Dagfinns tekur þátt í vöktum á Reykjavíkursvæðinu. Dýralæknir frá Dagfinni er þá á vakt 3–4 sinnum í mánuði á stofunni í miðbænum.

Hringt er í 530 4888 og þá er gefið samband við dýralækni. Einungis einn dýralæknir er á vakt fyrir allt höfuðborgarsvæðið og því er álagið mikið. Bakvaktarþjónustan er ætluð alvarlega veikum eða slösuðum dýrum.

Virðum vaktina

  • Ekki hringja vegna tilfella sem geta beðið til morguns eða fram yfir helgi.
  • Ekki láta börn hringja. Þetta er neyðarþjónusta en ekki spjallrás.
  • Ekki vekja dýralækninn að nóttu nema brýn nauðsyn sé til.

Hvað kostar útkall?

Við útkall bætast skoðunar- eða aðgerðargjöld með álagi, auk lyfja, efniskostnaðar og ekinna kílómetra.

Hvenær?
Þarf aðstoð (t.d. við aðgerð)?

Útreikningurinn miðar við lægsta skoðunargjald. Lyf, efniskostnaður og eknir kílómetrar bætast við.

Áætlaður lágmarkskostnaður
frá 57.574 kr
Útkall dýralæknis
43.100 kr
Skoðunargjald + 45% álag
14.474 kr
Samkvæmt verðskrá, uppfærðri í janúar 2025.