Hundar
Við bjóðum upp á alla almenna dýralæknaþjónustu, heilbrigðisskoðanir og bólusetningar fyrir hundinn þinn, allt frá fyrstu hvolpaskoðun til umönnunar á efri árum.

Nýr hundur á heimilið
- Bólusetja þarf hvolpinn gegn parvoveiru og lifrarbólgu þegar hann er 8 og 12 vikna. Eftir grunnbólusetningu er bólusett árlega.
- Ormahreinsa þarf hvolpa helst tveggja vikna gamla og síðan þriggja til fjögurra mánaða gamla. Gott er að fara með hvolpinn í almenna heilbrigðisskoðun.
- Hlýðniþjálfun: best er að fara með hvolpinn í hundaskóla, bæði fyrir hvolpinn og eigandann.
- Í þéttbýli þarf að skrá hundinn hjá sveitarfélaginu og tryggja hann gegn skaða sem hann getur valdið. Vottorð um ormahreinsun frá dýralækni þarf við skráningu og víðast á höfuðborgarsvæðinu þarf hundurinn örmerkingu.
Bólusetning og smáveirusótt
Smáveirusótt er alvarlegur sjúkdómur af völdum parvoveiru (CPV-2). Hérlendis sáust fyrstu tilfellin 1992. Smitefnið berst með saur og saurmenguðum hlutum, hundarnir verða oftast mjög veikir og veikin getur leitt til dauða á skömmum tíma.
Hvolpar eru bólusettir 8 og 12 vikna og gott er að bæta þriðju bólusetningunni við 16 vikna. Síðan er bólusett árlega.
Ormar og ormahreinsun
Hvolpar smitast oftast af iðraormum í móðurkviði. Fullorðnir hundar sýna yfirleitt lítil einkenni en geta verið stöðugir smitberar. Iðraormar eru hættulegastir hvolpum og unghundum.
Skylt er að láta hreinsa hundinn árlega gegn sullaveiki og öðrum innyflaormum sem geta borist í fólk. Best er að ormahreinsa hunda 1–4 sinnum á ári.
Merki um ormasmit
- Niðurgangur
- Uppköst
- Hósti
- Mattur feldur
- Vanþrif
- Þaninn kviður
Örmerking
Örmerki er örlítill kubbur sem settur er undir húð og virkar líkt og strikamerking. Í hundareglugerð flestra sveitarfélaga er ákvæði um að hundar skuli merktir með örmerki. Best er að láta örmerkja hvolpa um leið og bólusetning fer fram.
Mjaðmalos
Hundar fæðast ekki með mjaðmalos heldur kemur það fram á vaxtarskeiðinu, einkum hjá þyngri tegundum og sjaldan eða aldrei hjá hundum léttari en 10–12 kg.
Rannsóknir hafa sýnt að um 25% sjúkdómsins stýrist af erfðum en 75% af umhverfisþáttum, svo sem fóðrun, hreyfingu og líkamsþunga.
Hundar í bíl
Hvolpar verða oft bílveikir og því er gott að hafa ferðirnar stuttar fyrst um sinn og gefa ekki mikið að borða áður en lagt er af stað. Helst ætti hundurinn að vera í búri eða hundagrind aftur í bílnum.
Sé hundur skilinn eftir í bíl þarf að hafa rifu á glugganum og leggja í skugga. Hundar eru mjög viðkvæmir fyrir hita.
Meðganga og fæðing
Meðgöngutíminn hjá hundum er 61–63 dagar. Seinni mánuðinn þarf tíkin prótein- og orkuríkara fóður og er hvolpafóðrið þá aukið smám saman, um 25% í viku, síðustu fjórar vikurnar.
Líkamshitinn fellur um 0,5–1 gráðu um sólarhring fyrir got. Fæðingin skiptist í þrjú stig: útvíkkunarstig, rembingsstig og fylgjufæðingu.
Gamli hundurinn
Eðlilegt má teljast að hundar nái 8–15 ára aldri, stærri tegundir styttra en litlar. Með aldrinum verður hundurinn makráðari, sefur meira og sjón, heyrn og lyktarskyn daprast.
Með ofurlítilli aukaumhyggju geta gamlir hundar unað sér vel. Hundurinn þarf hlýtt bæli þar sem ekki er dragsúgur og ætti ekki að vera lengi úti í kulda.
Áramót
Á gamlársdag, gamlárskvöld, nýársdag og þrettándanum er æskilegt að halda hundum inni. Útbúið skjól í rými sem hundurinn þekkir, dragið fyrir glugga og hafið kveikt á útvarpi.
Einungis í mjög slæmum tilfellum er ástæða til að gefa róandi lyf. Leitið þá tímanlega til dýralæknis.
Heilsudagatal fyrir hvolpinn
Veldu fæðingardag og sjáðu hvenær kemur að bólusetningum, ormahreinsun og aðgerðum.
Veldu fæðingardag og þá raðast bólusetningar, ormahreinsanir og aðgerðir á réttar dagsetningar, samkvæmt leiðbeiningum stofunnar.
Verð
- Bólusetning og árleg heilsufarsskoðun (10 kg)frá 15.000 kr
- Seinni/þriðja bólusetningfrá 8.528 kr
- Gelding (10 kg)frá 52.000 kr
- Ófrjósemisaðgerð (10 kg)frá 90.000 kr
- Tannhreinsunfrá 30.000 kr
- Heyrnamælingu.þ.b. 18.000 kr
Viðmiðunarverð með lyfjum og efniskostnaði. Um helgar bætist 20% álag við skoðanir og meðhöndlun. Öll verðskráin
Spurt og svarað
Hundarnir mínir eru svo andfúlir. Þeir eru á þurrfóðri og fá nagbein reglulega.
Það gæti hjálpað að láta hreinsa tennurnar og fóðrið getur líka haft áhrif. Láttu dýralækni líta á þá.
Mér finnst oft mikil hundalykt af hundunum. Er til eitthvað annað en að baða þá?
Það fæst sjampó í úðaformi sem er sprautað yfir feldinn, meðal annars hjá okkur. Endaþarmskirtlar geta líka lyktað illa og þá er gott að láta dýralækni athuga það.
Tíkin mín sturlast við að heyra í flugeldum. Er eina ráðið að gefa róandi?
Best væri að koma hundinum burt þaðan sem verið er að skjóta upp flugeldum, til dæmis á hundahótel utan borgarinnar.
Border Collie-inn minn fer stöðugt úr hárum, allan ársins hring.
Stundum hjálpa vítamínsprautur. Hárlos getur líka verið ofnæmiskennt og þá hjálpar að finna rétta fóðrið, jafnvel sjúkrafóður um tíma. Komdu með hann til dýralæknis.
Við erum að heiman frá 8:30 til 17:30. Gengur að fá sér hund?
Þetta er allt of langur tími fyrir hund að vera einn heima ef það er alla daga og enginn kemur heim yfir daginn.




