Öll dýr · 16. júní 2020
Vaktaþjónusta dýralækna
Dýralæknastofa Dagfinns tekur þátt í vöktum á Reykjavíkursvæðinu. Dýralæknir frá Dagfinni er þá á vakt 3–4 sinnum í mánuði á stofunni í miðbænum.

Svona virkar vaktin
Hringt er í 530 4888 og þá er gefið samband við dýralækni á vakt. Einungis einn dýralæknir er á vakt fyrir allt höfuðborgarsvæðið og álagið er því mikið.
Virðum vaktina
- Ekki hringja vegna tilfella sem geta beðið til morguns eða fram yfir helgi.
- Ekki láta börn hringja á vaktina. Þetta er neyðarþjónusta, ekki spjallrás.
- Ekki vekja dýralækninn að nóttu nema brýn nauðsyn sé til.
Ef eitthvað er óljóst, ekki hika við að hafa samband við okkur.
Bóka tíma


