Nagdýr

Naggrísir, hamstrar, mýs, stökkmýs og chinchillur. Að eiga nagdýr fylgir ábyrgð sem þarfnast tíma og umhyggju.

Nagdýr

Áður en þú færð þér naggrís

  • Naggrísir lifa í 5–7 ár og geta jafnvel orðið 12 ára.
  • Þeir þurfa stórt búr, hreint undirlag og ferska fæðu.
  • Naggrísir eru félagslyndir og þurfa athygli og hreyfingu daglega. Betra er að hafa tvo en einn.
  • Kanínur og naggrísir eiga ekki vel saman.
  • Er ofnæmi fyrir dýrahárum í fjölskyldunni?
  • Naggrísir naga húsgögn, teppi og leiðslur.

Að velja heilbrigt dýr

Hreinn, mjúkur og skínandi feldur á þéttum skrokki, björt og skýr augu, sterkir fætur, hrein og þurr eyru, hreint í kringum endaþarm og þögul, regluleg öndun.

Algengir sjúkdómar

Gott er að láta dýralækni yfirfara tennur, eyru og feld naggríssins.

  • Maurar og lýs: naggrísinn klórar sér mikið, fær hárlos og jafnvel sár. Ekki reyna að meðhöndla óþrif sjálf.
  • Kvef og lungnasýkingar: naggrísir eru mjög viðkvæmir fyrir kulda, raka og trekki. Hósti, nefrennsli eða öndunarerfiðleikar kalla á dýralækni strax.
  • Augnsýkingar: hvítleit slikja á auga er oftast merki um sárindi í auga.

Spurt og svarað

Önnur stökkmúsin mín ræðst á allt og bítur fast. Er þetta eðlilegt?
Svar dýralæknis

Líklega er þetta karldýr og þá væri ráð að láta gelda hann.

Hamsturinn minn er mjög hávær á nóttunni. Er eitthvað hægt að gera?
Svar dýralæknis

Hamstrar eru náttdýr og virkastir á kvöldin og nóttunni. Reyndu að útbúa búrið þannig að ekki heyrist jafn hátt í því.

Fara hamstrar í vetrardvala?
Svar dýralæknis

Nei, hamstrar fara ekki í vetrardvala. Ef hamsturinn liggur hreyfingarlaus og andar hægt gæti hann verið veikur og þarf að fara til dýralæknis.

Er hægt að láta gelda mýs?
Svar dýralæknis

Já, það er hægt að gelda mýs.

Hvað lifa chinchillur lengi?
Svar dýralæknis

Chinchillur verða að meðaltali 10 ára en geta orðið allt að 20 ára. Þær verða kynþroska 4–12 mánaða.

Greinar