Fuglar
Páfagaukar hafa lengi verið heimilisfuglar manna. Fái þeir viðeigandi umhirðu geta þeir lifað ágætu lífi í minnst 10–12 ár.

Páfagaukar
Gárar eru upprunnir í Ástralíu og eru í ýmsum litum. Bæði karl- og kvenfuglar eru ágæt gæludýr og eru meðal greindustu fugla.
Fóðrunin er mikilvægasti þátturinn í réttri meðferð páfagauksins. Rétt samsett fóður veitir orku til leikja og tals og bægir frá algengum veikindum sem hrjá ranglega fóðraða fugla.
Að skipta um fóður
Harrison’s fuglafóður er náttúrulegt hágæðafóður fyrir alla fugla og mælt er með að meiriháttar fóðurbreytingar séu gerðar í samráði við dýralækni.
- Hafið nýja fóðrið í skálinni allan daginn og gefið gamla fóðrið tvisvar á dag í 30 mínútur í senn.
- Blandið smám saman meira af nýja fóðrinu við það gamla og minnkið gamla fóðrið niður í ekki neitt á 3–5 dögum.
- Takmarkið aukabita eftir skiptin við lítið magn af dökkgrænu eða dökkgulu grænmeti eða ávöxtum.
Félagi fyrir gárann
Gott er fyrir gára að hafa félaga. Best er að venja fuglana saman í sitt hvoru búrinu hlið við hlið í smá tíma áður en þeir eru settir saman.
Spurt og svarað
Hvað er útungunartíminn hjá gára langur?
Útungunartími hjá gára á að vera 18–21 dagur.
Gárakerlingin mín er orðin slöpp og vill bara vera í búrinu.
Láttu dýralækni líta á hana. Erfitt er að sjá að fuglar séu veikir fyrr en veikindin eru orðin alvarleg.
Á ég að fá karl eða kerlingu sem félaga fyrir þriggja ára gárakerlingu?
Betra er að fá karl fyrir hana og láta þau kynnast fyrst í sitt hvoru búrinu hlið við hlið.
Gárinn minn var gæfur en er farinn að bíta fast.
Kannski kom eitthvað fyrir sem gerði hann hræddan. Líklega þarf að byrja tamningu upp á nýtt til að vinna traust hans aftur.




