Kettir

Bólusetningar, ormahreinsun, geldingar og tannheilsa. Hér eru helstu atriðin um heilsu kattarins, frá kettlingi til eldri kisu.

Kettir

Bólusetningar

Bólusetningar eru ónæmisaðgerðir sem veita vörn gegn ákveðnum smitsjúkdómum. Bóluefnið er gefið undir húð og bóluefni sem notað er fyrir ketti hér á landi inniheldur eingöngu óvirkjaðar veirur.

Á Íslandi er bólusett gegn

  • Kattafári – vírussjúkdómi sem er einkum hættulegur kettlingum og ungum dýrum.
  • Kattainflúensu – kattaflensu og kattakvefi, algengustu orsök öndunarfærasýkinga hjá köttum.
  • Chlamydiu – nær eingöngu hjá kattaræktendum og þar sem smitálag er mikið.

Hvenær á að bólusetja?

Kettlinga undir 8 vikna aldri hefur litla þýðingu að bólusetja, því mótefni frá móðurinni gera bóluefnið óvirkt. Við 8–12 vikna aldur er kominn tími á fyrstu bólusetningu og hana skal endurtaka 3–4 vikum síðar. Þá telst kötturinn grunnbólusettur.

Fullorðna ketti sem áður hafa verið bólusettir skal alla jafna bólusetja árlega. Á ferð til útlanda þarf að bólusetja gegn hundaæði, minnst 30 dögum fyrir brottför til t.d. Þýskalands eða Spánar og 6–7 mánuðum fyrir ferð til Svíþjóðar, Noregs eða Bretlands.

Örmerking og eyrnamerking

Í kattasamþykkt höfuðborgarinnar er ákvæði um að allir kettir skuli merktir með örmerki. Best er að láta örmerkja um leið og gelding eða ófrjósemisaðgerð er gerð.

Eyrnamerking er varanlegt kennimark sem auðvelt er að setja meðan kötturinn er í svæfingu. Kettir geta týnt lausum merkjum á hálsól en eyrnamerking fylgir þeim ávallt.

Ormahreinsun

Ketti ætti helst að ormahreinsa tvisvar á ári og útiketti 2–4 sinnum á ári. Kettlinga þarf skilyrðislaust að ormahreinsa, jafnvel með styttra millibili, og mikla veiðiketti oftar en ketti sem eru friðarsinnar.

Best er að láta dýralækninn ormahreinsa köttinn um leið og bólusett er.

Þvagstífla

Um 3 af hverjum 100 köttum fá þvagstíflu einhvern tímann á ævinni og geltir fressar eru í meiri hættu. Kötturinn fer oft í sandkassann án þess að mikið komi, þvagið er dökkt eða blóðlitað og hann virðist rembast.

Ef þvagrásin er alveg lokuð getur þrýstingur sprengt blöðruna. Farðu strax með köttinn til dýralæknis.

Tannhreinsun

Tannsteinn veldur bólgu í tannholdi og getur leitt til sýkingar í tannrót og tannmissis. Best er að láta fjarlægja tannsteininn áður en tannholdið er orðið mjög bólgið. Þurrfóður hægir á tannsteinsmyndun.

PKD hjá persum

PKD er arfgengur nýrnasjúkdómur sem hefur fundist í persaköttum og fleiri austurlenskum tegundum. Auðveldast er að greina hann með sónarskoðun á nýrum, jafnvel áður en einkenna verður vart. Skoðunin tekur aðeins nokkrar mínútur og er sársaukalaus.

Gelding og ófrjósemisaðgerð

Hægt er að gelda ketti á hvaða aldri sem er, en yfirleitt er mælt með því um fimm eða sex mánaða aldur. Gelding breytir ekki skapgerð kattarins, en geltir högnar verða oft makráðir og fitna.

Við ófrjósemisaðgerð eru eggjastokkar og leg fjarlægð. Læðuna má yfirleitt taka heim sama dag og eftir um vikutíma má taka saumana. Það skiptir læðuna engu hvort hún eignast kettlinga einu sinni áður.

Kisa pissar utan kassans

Ef kötturinn er geltur eru það oft viðbrögð við breytingum á heimilinu. Hjá dýralækni fæst lyktarhormónið Feliway sem hefur róandi áhrif og lagar oft vandann. Stundum er þó um sjúkdóm að ræða og þá þarf að skoða köttinn.

Offita

Þegar þú strýkur kettinum áttu að finna rifbeinin án þess að þrýsta. Feitir kettir fá frekar húðvandamál og þvagsteina og aukin þyngd eykur álag á hjarta og liðamót. Veldu gott fóður og skammtaðu daglega.

Eldri kettir

Eðlilegt má teljast að heimiliskettir nái 14 ára aldri og ekki óalgengt að þeir verði 16–17 ára. Ellimerkin eru að kötturinn verður makráðari og sefur meira, flestir leggja af og þorsti eykst.

Þegar kötturinn er farinn að eldast (10–12 ára) er gott að fjölga heimsóknum til dýralæknis og fara yfir hvaða fæði hentar.

Áramót

Haltu kettinum inni allan gamlársdag, gamlárskvöld, nýársdag og á þrettándanum. Kettir sækja í dimm skot. Dragðu fyrir glugga og hafðu kveikt á útvarpi. Ekki er ráðlegt að gefa róandi lyf nema í undantekningartilfellum.

Heilsudagatal fyrir kettlinginn

Veldu fæðingardag og sjáðu hvenær kemur að bólusetningum, ormahreinsun og aðgerðum.

Fæðingardagur

Veldu fæðingardag og þá raðast bólusetningar, ormahreinsanir og aðgerðir á réttar dagsetningar, samkvæmt leiðbeiningum stofunnar.

Verð

  • Bólusetning og árleg heilsufarsskoðunfrá 15.900 kr
  • Seinni bólusetningfrá 9.828 kr
  • Geldingfrá 20.000 kr
  • Allur pakkinn – fress (gelding, bólusetning, ormahreinsun og örmerking)frá 34.000 kr
  • Ófrjósemisaðgerðfrá 26.000 kr
  • Allur pakkinn – læða (ófrjósemisaðgerð, bólusetning, ormahreinsun og örmerking)frá 41.070 kr
  • Tannhreinsunfrá 23.000 kr

Viðmiðunarverð með lyfjum og efniskostnaði. Um helgar bætist 20% álag við skoðanir og meðhöndlun. Öll verðskráin

Spurt og svarað

Er rétt að gefa köttum einungis þurrfóður og vatn?
Svar dýralæknis

Þurrfóðrið slípar tennurnar og köttum er síður hætt við tannsteini en á blautfóðri. Kettir þola mjólkurvörur misvel og því er vatnið skynsamlegasti kosturinn.

Ég gauka stundum kæfu, rækjum og lifrarpylsu að læðunni minni. Er nokkuð að því?
Svar dýralæknis

Það er í lagi á meðan það er ekki of mikið í einu og læðan fitnar ekki.

Það lekur mikið úr augunum á persakettlingnum mínum.
Svar dýralæknis

Það vill oft leka úr augum persakatta. Gott er að hreinsa augun með augnhreinsi sem fæst hjá dýralækni. Ef sýking er í auga þarf oft fúkkalyf.

Er óhjákvæmilegt að kettir fari úr hárum?
Svar dýralæknis

Kettir fara alltaf eitthvað úr hárum, en það má minnka mikið með vítamíni og réttu fóðri.

Greinar