Hundar og kettir · 5. febrúar 2020
Þurrt auga (KCS)
Upplýsingar til eigenda um Keratoconjunctivitis sicca, sjúkdóm sem kemur upp þegar framleiðsla á vatnslega hluta táravökvans minnkar.

Hvað er þurrt auga?
Vatnslegi hluti táravökvans er framleiddur í tveimur kirtlum í augnlokunum. Algengasta ástæðan fyrir því að framleiðslan minnkar er að ónæmiskerfi líkamans ræðst á kirtilinn. Framleiðsla fitu- og slímhluta táranna helst þó í lagi, sem skýrir af hverju augun eru oft með mikla slímkennda útferð.
Af hverju eru tárin mikilvæg?
- Hjálpa til við að fá skýrari sjón
- Smyrja augnlokin
- Færa næringu og fjarlægja úrgangsefni
- Koma í veg fyrir sýkingar
- Fjarlægja aðskotahluti af hornhimnunni
- Stjórna sýrustigi í ysta lagi hornhimnunnar
Tegundir í aukinni hættu
Vandamálið er þekktast hjá hundum en getur einnig komið upp hjá köttum.
- Cocker spaniel (amerískur og enskur)
- Cavalier King Charles spaniel
- Miniature schnauzer
- West Highland white terrier
- Bulldog og Boston terrier
- Lhasa apso og Shih tzu
- Yorkshire terrier
- Pekingese og Pug
- Samoyed og blóðhundur
Einkenni
Líflaus augnslímhúð og hornhimna, roði og bólga í slímhúð. Dýrið pírir augun vegna verkja og slím eykst. Ef ástandið er slæmt getur hornhimnan orðið bláleit, æðar farið að vaxa í henni og hún dökknað. Getur komið upp í öðru auganu eða báðum.
Greining
Gerð með einföldu prófi (Schirmer tear test): hvítum strimli er komið fyrir undir augnlokinu í eina mínútu og mælt hve langt tárin ná.
| Eðlilegt | yfir 15 mm |
| Á mörkum | 11–15 mm |
| Lágt | undir 10 mm |
| Mjög lágt | undir 5 mm |
Meðhöndlun
Fyrst þarf að ná niður sýkingu með sýklalyfjum. Síðan er byrjað á augnsmyrsli (cyclosporine) tvisvar á dag og táraframleiðslan mæld aftur eftir 3–4 vikur. Framfarir sjást í um 80% tilfella og þá má oft minnka meðhöndlunina. Gervitár eru notuð samhliða 4–6 sinnum á dag.
Meðhöndlunar er þörf það sem eftir er ævinnar. Daginn sem komið er í endurmælingu má ekki meðhöndla augun með neinum lyfjum eða dropum.
Ef eitthvað er óljóst, ekki hika við að hafa samband við okkur.
Bóka tíma


