Hundar · 5. febrúar 2020
Æxlunarfræði hunda
Kynþroski, lóðarí, meðganga, óæskileg pörun, geldingar og ófrjósemisaðgerðir: það helsta sem hundaeigendur þurfa að vita.

Kynþroski
Fyrsta lóðarí hjá tíkum er algengast milli 6 og 9 mánaða aldurs. Því stærri sem tegundin er, því seinna verða þær kynþroska. Rakkar ná kynþroska eftir 5 mánaða aldur. Ekki er ráðlagt að para tíkur fyrr en eftir 2 ára aldur, né nota rakka til pörunar fyrr en eftir 1 árs.
Lóðarí
Tíkur lóða 1–3 sinnum á ári, algengast tvisvar. Lóðaríið hefst með blæðingum sem standa að meðaltali í 9 daga. Þá tekur við tímabilið þegar tíkin stendur fyrir rakka (1–10 dagar) og í lok þess á egglos sér stað. Síðustu 2–4 dagana minnkar bólgan en rakkar sýna enn áhuga.
Er tíkin hvolpafull?
- Þreifing á kvið: um 3 vikum eftir pörun, en ónákvæm.
- Sónar: frá degi 21 eftir pörun, hjartsláttur greinist eftir dag 28.
- Röntgen: notað til að telja fóstur eftir dag 50.
Óæskileg pörun
Eftir slysapörun er hægt að gefa lyf sem framkallar fósturlát. Koma þarf tvisvar með 24 tíma millibili og bestur árangur næst því fyrr sem það er gert. Mælt er með sónarskoðun 10 dögum eftir lyfjagjöf.
Ófrjósemisaðgerð tíka
Eggjastokkar og leg eru fjarlægð, frá 5–7 mánaða aldri. Besti tíminn er um 3–4 mánuðum eftir lóðarí. Aðgerðin dregur úr hættu á júgurkrabbameini, mest ef hún er gerð fyrir fyrsta lóðarí. Tíkin þarf skerm í 7–10 daga og saumar eru teknir 10–12 dögum eftir aðgerð.
Gelding rakka
Hægt frá 5–7 mánaða aldri og mun minna inngrip en ófrjósemisaðgerð. Algengt er að hundar þyngist eftir geldingu og því þarf að passa hreyfingu og skammta, sérstaklega fyrstu 6–7 mánuðina. Gelding fyrirbyggir meðal annars eistnakrabbamein og blöðruhálskirtilsstækkun.
Geldingarstafur er valkostur fyrir þá sem eru óvissir. Hann tekur um 6 vikur að ná fullri virkni og virkar í 6 mánuði eða 1 ár.
Ef eitthvað er óljóst, ekki hika við að hafa samband við okkur.
Bóka tíma


