Kanínur
Kanínur eru greind, vinaleg og hljóðlát gæludýr sem verða hluti af fjölskyldunni. Meðalævilengd er 7–9 ár, en vitað er um kanínur sem hafa náð 15 ára aldri.

Almennt um kanínur
Kanínan er plöntuæta, oftast á beit í rökkrinu eða að næturlagi, og lyktarskynið er mjög næmt. Úti í náttúrunni flýja kanínur við hættumerki, en búrkanínur geta sýnt árásargirni þegar þeim er ógnað eða þær eru stressaðar.
Frekar auðvelt er að þjálfa þær í að gera þarfir sínar á ákveðnum stöðum. Kanínur verða kynþroska við 3–10 mánaða aldur og meðgangan er 29–35 dagar.
Fóðrun
Kanínur eru grasætur og geta lifað allt sitt líf eingöngu á grasi og gæðaheyi. Fæðan ætti að vera hey, vatn, gæðakanínukorn og ferskt grænmeti, og verðlaunabitar aðeins í litlu magni.
Það er eigandinn sem ræður fóðrinu. Ef kanínan vill ekki éta hey þó ekkert annað sé í boði ætti að láta dýralækni skoða hana.
Að taka upp kanínu
Styðjið alltaf við afturfæturna. Hryggurinn er veikburða og getur brotnað ef kanínan sparkar kröftuglega með lafandi afturfætur. Takið aldrei upp kanínu á eyrunum.
Setjið aðra höndina á milli framfótanna undir brjóstkassann og hina undir afturfæturna. Æfið ykkur í gólfhæð til að byrja með.
Búr og umhverfi
Best er að búrið sé með heilu gólfi svo kanínan fái ekki sár á hækilinn. Það þarf að vera minnst 50×100 cm fyrir litlar kanínur (undir 3 kg) og 70×100 cm fyrir stærri.
Dagblaðapappír með þykku lagi af heyi eða hálmi er náttúrulegt, ódýrt og mjúkt undirlag. Flísefni eru líka góð því þau má þvo.
Vítamínskortur
- A-vítamínskortur veldur augnrennsli, minni mótstöðu gegn sjúkdómum og dregur úr vexti.
- D-vítamínskortur veldur beinkröm. Einn dropi af lýsi á dag nægir fyrir A- og D-vítamínþörf.
- E-vítamínskortur veldur helti, stirðleika, ófrjósemi og mjólkurskorti.
Verð
- Geldingfrá 22.000 kr
Viðmiðunarverð með lyfjum og efniskostnaði. Um helgar bætist 20% álag við skoðanir og meðhöndlun. Öll verðskráin




