Litla húsið á Skólavörðustíg

Stofan er í miðbæ Reykjavíkur á Skólavörðuholtinu, rétt neðan við Hallgrímskirkju, við eina skemmtilegustu götu borgarinnar þar sem alltaf er líf og fjör.

Rekaviðarklæðningin og glerlistaverkið í glugganum
Inngangurinn
Stofan að vetri

Hús úr rekavið með torfþaki

Timburklæðningin á húsinu er íslenskur rekaviður frá Háareka og torfið á þakinu er villtur íslenskur gróður.

Stofan er lítil og heimilisleg og alltaf heitt kaffi á könnunni. Hún er vel tækjum búin og biðtíminn stuttur, því mest allt eru tímapantanir.

  • Fjögur bílastæði á einkalóð við stofuna.
  • Vottorð gæludýra eru send í tölvupósti.
  • Sendar eru áminningar um bólusetningar og ófrjósemissprautur.

Saga stofunnar

  1. 1999
    Guðbjörg Þorvarðardóttir dýralæknir byggði stofuna og hún tók til starfa í janúar 1999.
  2. 2008
    Sanita hóf störf sem dýralæknir á stofunni.
  3. 2022
    Guðbjörg rak stofuna og starfaði þar til hún féll frá 28. ágúst 2022. Sanita Sudrabina og Jóhanna H. Þorkelsdóttir tóku við rekstrinum.
  4. Í dag
    Sex manna teymi tekur á móti hundum, köttum, kanínum, nagdýrum og fuglum. Kynnast starfsfólkinu

Þau gerðu húsið

  • ArkitektGunnlaugur Björn Jónsson
  • HúsasmíðameistariBjörgvin J. Jóhannsson
  • GlerlistPía Rakel Sverrisdóttir
  • Grafísk hönnunSigríður Snjólaug Vernharðsdóttir
  • MálverkKristín María Ingimarsdóttir
  • Tölvukerfi stofunnarGuðbjörg Þorvarðardóttir
Skiltið við innganginn